Fara beint í efni

Sunnu­dags­leið­sögn fyrir börn og fjöl­skyldur | Hrafn­kell Sigurðsson X

til

Sunnudagsleiðsögn fyrir börn og fjölskyldur | Hrafnkell Sigurðsson X

Sunnudagsleiðsögn fyrir börn og fjölskyldur | Hrafnkell Sigurðsson X

Kjarvalsstaðir

til

Ariana Katrín Katrínardóttir verður með sunnudagsleiðsögn fyrir börn og fjölskyldur um sýningu Hrafnkels Sigurðssonar X á Kjarvalsstöðum, sunnudaginn 15. nóvember kl. 14.00.

Verk Hrafnkels draga gjarnan fram andstæður eins og á milli skipulags og óreiðu, menningar og náttúru. Listamaðurinn beinir sjónum að því hvernig mannleg kerfi takast á við náttúrulegt niðurbrot og dregur fram fegurðina í því sem við lítum oft framhjá, til dæmis rusli, sjúskuðu yfirborði og öðru í hverfulleika daglegs lífs.

Þótt verk hans spretti oft úr ólífrænu umhverfi, tekst honum á einstakan hátt að kalla fram náin tengsl við mannslíkamann. Verkin eru í senn ljóðræn og hugmyndafræðileg, en búa jafnframt yfir kynngimögnuðum og dulúðugum krafti.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.