Reykjavík Dance Festival | Hundasýning – WAUHAUS
til

Reykjavík Dance Festival | Hundasýning – WAUHAUS
Hafnarhús
til
Kynning þar sem listamennirnir Jarkko Partanen og Jussi Matikainen í WAHAUS segja frá tilurð The Companion, ræða ferlið og taka sýnidæmi með hjálp hugrakkra sjálfboðaliða úr áhorfendahópnum.
Í afslöppuðu andrúmslofti skoðum við saman hugmyndir á borð við manngervingu, samlíðan og ekki-mennskan vilja. Í lok kynningarinnar verður gestum boðið að klappa vélhundi.
WAUHAUS er þverfaglegur listhópur í Helsinki sem var stofnaður árið 2016. Verk hópsins má staðsetja milli ólíkra listgreina og hafa þau verið sýnd í ýmiss konar rýmum, svo sem söfnum, svörtum kössum, borgarlandslagi, á stórum leikvöngum og aðalsviðum stofnanaleikhúsa. WAUHAUS eru þekkt fyrir samsköpun og fagurfræði þar sem hið hljóð- og sjónræna fléttast saman. Meðlimir WAUHAUS eru sviðshönnuðurinn Laura Haapakangas, leikstjórinn Juni Klein, sviðshönnuðurinn Samuli Laine, hljóðhönnuðurinn Jussi Matikainen, danshöfundurinn Jarkko Partanen, hljóðhönnuðurinn Heidi Soidinsalo, framleiðandinn Minttu-Maria Jäävuori og framkvæmdastjórinn Julia Hovi. Hópurinn vinnur með öðru listafólki og menningarstofnunum bæði í Finnlandi og erlendis.