Fara beint í efni

Málþing | Ferill í fókus: Yfir­lits­sýn­ingar lista­fólks

til

Málþing | Ferill í fókus: Yfirlitssýningar listafólks

Málþing | Ferill í fókus: Yfirlitssýningar listafólks

Hafnarhús

til

Yfirlitssýningar veita einstakt tækifæri til að líta yfir feril listamanna og sjá hvernig verk þeirra hafa þróast í tímans rás.Á ráðstefnunni verður fjallað um yfirlitssýningar sem sýningarform, áhrif þeirra og þær ólíku leiðir sem notaðar eru til að gera grein fyrir ævistarfi listamanna.

Málþingið er hluti af faglegri viðburðardagskrá Listasafns Reykjavíkur og er nú haldin í tilefni af tíundu yfirlitssýningunni á Kjarvalsstöðum og útgáfu í röð yfirlitssýninga safnsins. Ráðstefnan fer fram í Fjölnotarými Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi.

Dagskrá

13:00–13:05 Sigurður Trausti Traustason, deildarstjóri safneignar og rannsókna hjá Listasafni Reykjavíkur Kynning á viðfangsefni málþingsins og markmiðum dagsins.

13:05–13:45 Jessica Baxter, sýningarstjóri Tate Modern

13:45–14:15 Markús Þór Andrésson, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Mid-career sýningar Listasafns Reykjavíkur og útgáfur.

14:15–14:35

Kaffihlé

14:35–15:05 Brynja Sveinsdóttir, safnstjóri Gerðarsafns Gerður og Valgerður

15:05–15:35 Dagný Heiðdal, listfræðingur og skráningarstjóri Listasafns Íslands

15:35–16:05 Harpa Björnsdóttir, sýningarstjóri.

16:05–16:15 Stutt hlé

16:15–17:15 Pallborðsumræður: Hlutverk yfirlitssýninga í samtímanum Þátttakendur • Jessica Baxter • Markús Þór Andrésson • Brynja Sveinsdóttir • Dagný Heiðdal • Harpa Björnsdóttir

Pallborðsumræður um hlutverk yfirlitssýninga og miðferilssýninga í samtímanum, rannsóknargildi þeirra, áhrif á feril listamanna og stöðu þeirra í starfsemi listasafna.

17:15 Lokaorð og móttaka

Samantekt dagsins og léttar veitingar að málþingi loknu.