Fara beint í efni

Hinsegin leið­sögn | Lekir líkamar, sameig­in­legir heimar

til

Hinsegin leiðsögn | Lekir líkamar, sameiginlegir heimar

Hinsegin leiðsögn | Lekir líkamar, sameiginlegir heimar

Hafnarhús

til

Í leiðsögninni munum við skoða úrval verka á sýningunni Lekir líkamar: Sameiginlegir heimar með Viktoríu Guðnadóttur myndlistarkonu og dr. Yndu Eldborg list- og safnafræðu.

Athyglinni verður beint að hinsegin þáttum sem birtast í nokkrum verkanna og byggt á hugmyndum um hinsegin óreiðu (e. queer chaos). Skoðað verður hvort og hverrnig hinsegin óreiða gæti verið lykill að skilningi á verkunum og lausn á óskiljanleika sem oft er tengur við myndlist hinsegin listafólks. Að auki skoðum við myndmál listafólksins og hvort og hvernig fyrirmyndir sem þátttakendur gætu tengst gætu leynst í verkunum.

Viktoría Guðnadóttir (hún/hennar) er listakona og sýningarstýra fædd á Íslandi en býr og starfar í Hollandi. Hún er með B.A. gráðu í myndlist frá ArtEZ (AKI) og framhaldsgráðu frá the Dutch Art Institute. List hennar er djúpstætt persónuleg og áberandi pólitísk og túlkar á djarfan hátt þemu um þjóðlega, femíníska og kynferðislega sjálfsmynd. Hún vinnur með fjölbreytt efni og miðla og verk hennar hafa verið sýnd víðsvegar um Evrópu og Asíu, þar á meðal í Þýskalandi, Íslandi, Kína, Indlandi, Japan, Belgíu og Hollandi. Sem sýningarstýra og rannsakandi hefur Viktoría aðallega einbeitt sér að hinsegin list og kannað bæði samtímalist og söguleg sjónarhorn. Sýningarverkefni hennar skapa rými fyrir vanframsettar raddir og leitast við að raska hefðbundnum frásögnum innan listheimsins. Dr. Ynda Eldborg (hún/háns) er list- og safnafræða og lauk doktorsprófi í listfræði frá University of Leicester árið 2010. Einnig lauk hún MA prófum í list-, arkitektúr- og hönnunarsögu frá De Montfort University og Safnafræði frá University of Leicester og BA prófi í sagnfræði frá HÍ. Ynda hefur rannsakað sögu og samhengi hinsegin myndlistar og myndlistafólks á Íslandi og kennt við HÍ og LHÍ. Hún hefur stýrt sýningum í Red Tent Gallery í Leicester á Englandi, Gallerí Gesti/Gallery Guest farandgalleríi/Touring Gallery, Galleríi 78. Hún hefur stýrt sýningum sem varða sögu og samhengi hinsegin myndlistar á Íslandi í Nýlistasafninu, Listasafni Reykjanesbæjar, Borgarbókasafni Reykjavíkur, Norræna húsinu og Þjóðminjasafni Íslands, og verið forkona Listfræðifélags Íslands.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa og yngri en 18 ára.