Fara beint í efni

Roman Signer: Íslensk verk

Roman Signer, Under the Waterfal, 2026

Roman Signer: Íslensk verk

Hafnarhús

-

Þar sem hversdagslegir hlutir, náttúruöfl og tilviljanir mætast skapast augnablik sem umbreyta veruleikanum.

Einn áhrifamesti listamaður samtímans sýnir verk sem urðu til í íslensku landslagi.

Sýningin varpar ljósi á einstakt samband svissneska listamannsins Roman Signer við Ísland og þær fjölmörgu heimsóknir sem hann hefur átt hingað frá því snemma á tíunda áratugnum. Á sýningunni eru sýnd verk sem urðu til hér á landi, meðal annars ljósmyndir, kvikmyndaverk, skúlptúrar og innsetningar sem endurspegla langvarandi áhuga listamannsins á samspili manns, efnis og náttúruafla.

Í rúmlega fimm áratugi hefur Signer þróað einstakt myndmál þar sem hversdagslegir hlutir verða að efniviði listarinnar. Kajakar, regnhlífar, borð og aðrir nytjahlutir birtast í verkum hans við óvenjulegar aðstæður þar sem vindur, vatn, eldur, þyngdarafl eða tilviljun ráða framvindunni. Með nákvæmni, leikgleði og sérstökum húmor skapar Signer verk sem fanga augnablik umbreytinga og gera hið hversdagslega framandi. Íslenskt landslag, veðurfar og jarðfræðileg öfl hafa ítrekað orðið vettvangur slíkra tilrauna og skipa mikilvægan sess í listsköpun hans.

Sýningin kemur til Listasafns Reykjavíkur frá Skaftfelli myndlistarmiðstöð, þar sem hún var fyrst sett upp árið 2025.

Roman Signer (f. 1938) er meðal þekktustu og áhrifamestu listamanna Evrópu. Hann hefur frá því á áttunda áratugnum notið alþjóðlegrar viðurkenningar fyrir gjörninga, kvikmyndaverk, ljósmyndir, teikningar og innsetningar sem kanna tíma, hreyfingu, umbreytingu og áhrif náttúruafla. Verk hans hafa verið sýnd á helstu listasöfnum heims, þar á meðal í Museum of Modern Art (MoMA) í New York, Tate í London og Centre Pompidou í París, auk þess sem hann var fulltrúi Sviss á Feneyjatvíæringnum árið 1999. Signer býr og starfar í St. Gallen í Sviss.

Ítarefni

Sýningarstjóri

Gavin Morrison

Samstarfsaðili

Skaftfell

Listamenn